Ég er nemandi í MR og algjör miðbæjarrotta, skiljanlegt þar sem ég hef búið í Þingholtunum alla ævi. Mér finnst gaman af því að lesa, stjörnufræði, fötum og hekli, skartgripasmíðum, KERAMIK (hef verið á námskeiði í Myndlistask. reyk. í næstum 3 ár), kvikmyndum og að liggja í leti (með heitt kakó uppí sófa). Uppáhalds maturinn minn er fiskibollur í dós með karrísósu (ég kann samt ekki að búa hann til, síðast þegar ég reyndi fékk ég gubbupest í tvo daga eftir).